Apr 1, 2022
Kötlu Njálsdóttur Þórudóttur er
margt til listarinnar lagt. Hún er upprennandi leik- og söngkona,
tók þátt nýverið þátt í Söngvakeppninni og leikur í Vitjunum, nýjum
þáttum sem hefja göngu sína á RÚV í apríl. Katla býr einnig yfir
ótrúlegri lífsreynslu, þrátt fyrir ungan aldur en hún er 19 ára
gömul. Hún var einungis 16 ára gömul þegar hún missti pabba sinn,
Njál Þórðarson úr krabbameini.
Í þættinu talar hún á sinn einlæga hátt um það hvernig það er að
missa foreldri úr lífsógnandi sjúkdómi, hvernig það er að takast á
við sorgina og hvað situr eftir.